Varmalands laufabrauð

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Setjið mjólkina í pott og smjörið útí. Hitið þar til smjörið er bráðið
Skref 2
Á meðan mjólkin er að hitna eru þurrefnin mæld og sett í hrærivélarskál.
Þegar smjörið er bráðið blöndunni bætt í þurrefnin og hrært.
Deigið þarf að hnoða vel þangað til það er orðið létt og sprungulaust. Þá er deigið formað í lengju og skorið í hæfilega bita sem eru flattir út í örþunnar kökur.
Steikist í snarpheitri feiti. Munið að pikka kökurnar áður en þær eru steiktar.