Vanillekipferl - Þýskar jólasmákökur

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Setjið öll hráefnin saman í skál og hnoðið með höndum þar til deigið er orðið mjúkt og sprungulaust. Það getur verið gott að bleyta hendurnar í köldu vatni.
Vefjið deigkökuna inn í plastfilmu og setjið inn í ískáp í a.m.k. 30 mínútur.
Skiptið deiginu í tvennt og geymið helming þess áfram í kæli á meðan hinn helmingurinn er unnin.
Rúllið deiginu út í rúllu, u.þ.b. 3 cm í þvermál og skerið í u.þ.b 25 jafna hluta. Rúllið bitana áfram út og búið til "hálfmána" úr þeim (kipferl) og setjið á bökunarplötu með 2 cm millibili. Gerið það sama við hinn helming deigsins.
Bakist í 11-12 mínútur við 180˚C hita þar til endar hálfmánanna eru byrjaðir að verða gullnir á litinn.
Skref 2
Látið bakaðar kökurnar kólna í 2-3 mínútur á bökunarpappírnum á meðan sykrunum er blandað saman í skál.
Húðið kökurnar varlega með sykurblöndunni og leyfið þeim síðan að kólna áfram.
Geymið kökurnar síðan í loftþéttu boxi.