Beint að efninu

Tikka Masala kjúklingur

1

800gKjúklingabringur
1dlHrein jógúrt
2stkHvítlauksrif
3cmEngiferrót
1/2tskChili duft

Kjúklingur skorinn í hæfilega bita

Hvítlaukur og engifer rifið og blandað saman við jógúrtina ásamt kryddinu og sítrónusafanum.
Blandað kjúklingnum saman við og látið marinerast yfir nótt.

2

2-3stkHvítlauksrif
3cmEngiferrót
4mskMatarolía
1stkLaukur

Skerið laukinn smátt og rífið hvítlauksrif og engifer.
Hitið olíuna í potti og steikið við miðlungshita í nokkrar mínútur.

3

1tskMúskat
1tskTurmerik
1tskChili duft
1tskGaram masala
1tskCumin

Mælið kryddið út í skál og bætið síðan útí og látið hitna í 1-2 mínútur.

4

1dsSaxaðir tómatar
1mskTómat púrra
1 1/2dlRjómi

Setjið tómatinn og tómatpurréið útí og hrærið vel.
Látið suðuna koma upp og látið malla í nokkrar mínútur áður en rjómanum er bætt útí.

5

1/2BúntKóríander
1dlMöndlur

Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklingabitana þar til þeir eru gegnumsteiktir. Bætið þeim þvínæst útí sósuna.

Skerið möndlurnar í smátt og setjið samanvið.
Látið malla í u.þ.b. 10 mínútur. Bragðbætið með salti og pipar eftir þörfum.
Kóríander er settur útí í lokin, rétt áður en rétturinn er borinn fram.

  • Borið fram með Naan brauði, hrísgrjónum, Raita sósu og mangó chutney.