Súrsætt svín
Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Svínakjötið
Skref 1
Svínakjöt skorið niður í bita, má nota svínagúllas.
Blandið efnum saman í skál og hrærið vel saman, látið standa í 15 mínútur.
Að þeim tíma loknum er kjötið húðað með helmingnum af maíssterkjunni, látið standa í 5 mínútur og síðan húðað með hinum helmingnum. Þannig fæst vel húðað kjöt tilbúið til djúpsteikingar.
Djúpsteiking
Skref 1
Steikið kjötið upp úr 150˚C - 170˚C heitri olíu í u.þ.b. 3 mínútur, gott að gera í t.d. þremur slöttum.
Takið kjötið uppúr og þerrið
Hitið olíuna í 190˚C og steikið aftur í 1 mínútu.
Þannig verður kjötið brakandi stökkt.
Sósan
Skref 1
Blandið öllu saman í skál og hrærið vel saman
Skref 2
Blandið saman sterkju og vatni og hrærið vel saman
Hellið út í sósuna þegar hún er byrjuð að hitna á pönnunni, við það þykknar hún.
Grænmetið
Skref 1
Steikið í olíu á snarpheitri pönnu í eina mínútu
Takið svo til hliðar þar til sósan er orðin heit og þykk.
Sett saman á pönnu
Skref 1
Setjið smá olíu á pönnuna og hellið svo allri sósunni útá og látið hana hitna dáldið.
Setjið svo sterkjublönduna útí og hitið þar til sósan fer að þykkna.
Bætið grænmeti og svínakjöti útí ásamt niðurskornum ananas og hjúpið vel.