Súkkulaðikrem 2

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Setjið rauður,rjóma og sykur í pott. Hitið við vægan hita þar til kremið fer að þykkna. Hrærið stöðugt í.
Kremið má ekki sjóða.
Skref 2
Takið pottinn af hitanum og bætið súkkulaðinu útí og látið það bráðna. Það flýtir fyrir ef súkkulaðið er saxað.
Setjið smjörið útí smátt og smátt í litlum bitum. Hrærið vel á milli.