Súkkulaðibrauð

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Smjörlíki og sykur sett saman í hrærivélarskál og hrært rækilega saman áður en egginu er bætt útí og hrært enn um stund, þar til blandan er létt og ljós.
Skref 2
Öllum þurrefnum bætt útí, ásamt dropum og hrært saman.
Tekið úr skálinni á hveitiþakið borð og hnoðað saman í lengjur.
Lengjurnar eru settar á bökunarplötu og flattar út með fingrunum, þannig að þær verði u.þ.b. 5 cm breiðar og u.þ.b. 1 cm þykkar.
Strokið yfir með mjólk og perlusykri stráð yfir. Má líka dreifa hökkuðum möndlum yfir, ef vill.
bakað við 175˚C í 10 - 15 mínútur.