Steikt hrísgrjón með kjúkling

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Sósa
Skref 1
Setjið allt saman í hæfilega stóra skál og hrærið saman
Aðferð
Skref 1
Skerið beinlaust kjúklingakjöt niður í þunnar sneiðar þvert á vöðvann, hvort sem er bringa eða úrbeinað læri.
Setjið u.þ.b. 2 msk af sósunni útá og blandið vel saman.
Látið marinerast á meðan allt hitt er skorið niður og unnið
Má standa í kæli yfir nótt
Skref 2
Hitið smá olíu á pönnu. Hrærið eggin saman og hellið á pönnuna og hrærið áfram þar til næstum fullelduð. Takið af pönnunni og setjið til hliðar. Notast í lið 7
Skref 3
Hækkið hitann á pönnunni aðeins, bætið við olíu ef þarf.
Skerið beikon í litla bita og steikið á pönnunni. Þegar fitan er farin að bráðna, bætið smátt skornum lauk og hvítlauk útá.
Eldið þar til beikonið er orðið ljósgullið, u.þ.b. ein og hálf mínúta
Skref 4
Hér má gjarnan nota frosnar baunir og það má skipta þeim út fyrir hvaða niðurskorna grænmeti sem mann langar í.
Sett útá pönnuna og látið malla áfram
Skref 5
Setjið nú kjúklinginn útá og steikið þar til hann hefur skipt litum, þetta eru þunnar sneiðar og þurfa ekki mjög langan tíma.
Skref 6
Hrísgrjónin eiga að vera soðin daginn áður og geymd í kæli yfir nóttina. Við þessa geymslu þorna hrísgrjónin og klessast síður saman en nýsoðin grjón.
Grjónin eru sett útá pönnuna ásamt afgangnum af sósunni og hrært vel saman við
Skref 7
Setjið hrærðu eggin úr lið 2 útá ásamt niðurskornum vorlauk