Spínatlasagne með fetaosti

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Takið spínatið úr frysti og setjið í pott ásamt u.þ.b. botnfylli af vatni. Látið vatnið sjóða þar til spínatið er þiðið og setjið það síðan í sigti þar til það er notað sem er þegar rétturinn verður settur saman í lið 3.
Skref 2
Saxið laukinn og hvítlaukinn og steikið í smjörinu í potti.
Bætið tómötum og kryddi útí og látið sjóða við lágan hita, án loks, í u.þ.b. 15 mínútur og smakkið til með salti og pipar.
Skref 3
Setjið í ofnfast mót: Tómatsósa - Lasagne plötur - feta- ostur og spínat, í lögum, endið á tómatsósu. Verða líklega þrjú lög
Stráið rifnum osti yfir og bakið í ofni í u.þ.b. 35 mínútur við 200˚C
Leyfið að standa í u.þ.b. 10 mínútur eftir að mótið er tekið út úr ofninum.