Spesíur

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Öllu hrært saman og síðan er deiginu rúllað upp í snyrtilegar rúllur sem síðan er vellt upp úr perlusykri.
Látið kólna yfir nótt á köldum stað og þvínæst skorið í sneiðar sem settar eru á plötu og bakaðar.
Bakað við 200 ◦ C í u.þ.b. 10 mínútur, kökurnar eiga að vera ljósar.
Súkkulaðidropar eru settir á heitar kökurnar um leið og þær eru teknar út úr ofninum. Kökurnar eru síðan látnar standa þar til þær hafa kólnað og súkkulaðidroparnir storknað aftur.