Beint að efninu

Smjörkrem 1

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.

Grunnur

Hrærið smjörið þar til það verður létt og loftkennt.

Bætið eggjarauðunum útí, einni í einu, og hrærið vel á milli.

Bætið sykrinum útí og hrærið vel samanvið.

Setjið bragðefni útí síðast ef einhver eru.

Skúkkulaðikrem

Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og leyfið svo að kólna.

Hrærið súkkulaðinu samanvið kremið.

Ef súkkulaðið er of heitt bráðnar smjörið og kremið misheppnast.

Nougatkrem

Bræðið nougatið yfir vatnsbaði og kælið svo.

Hrærið saman við smjörkremið þar til það verður samfellt og glansandi.

Vanillukrem

Bætið vanilludropum útí eftir smekk.