Rabbabarasulta

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Rabbabarinn skal þveginn og skorinn í hæfilega litla bita.
Settur í stóran pott. Það þarf ekki að bæta vökva útí, það er nægur vökvi í rabbabaranum.
Skref 2
Já, það á að vera svona mikið af sykri. Helga segir það!
Sykrinum er blandað saman við rabbabarann í pottinum og potturinn settur á hellu sem stillt er á vægan hita.
Látið krauma þar til sultan er hæfilega þykk og hæfilega brún á litinn. Það tekur marga klukkutíma.
Hrærið öðru hverju í pottinum, sérstaklega á meðan sykurinn er að leysast upp.