Beint að efninu

Kjúklingur og pasta í hvítri ostasósu

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.

Skref 1

Skerið kjúklingabringurnar niður í hæfilega bita eftir smekk. Kryddið bitana með salti og pipar og steikið á pönnu með dálítilli olíu.  Takið kjúklinginn svo af pönnunni og setjið til hliðar.

Skref 2

Sjóðið pastað eins og sagt er fyrir um á pakkningunni.

Skref 3

Skerið paprikuna í smáa bita og setjið til hliðar.

Skref 4

Bræðið smjörið á pönnu.  Hvítlaukurinn er rifinn eða pressaður og steiktur í smjörinu.  Þykkið löginn þvínæst með hveitinu og látið malla í 1-2 mínútur.

Skref 5

Leysið jafninginn upp í mjólk og kjúklingasoði.  Látið malla áfram í nokkrar mínútur til að það þykkni smá.

Skref 6

Bætið útí og hrærið vel samanvið þar til osturinn er bráðinn.

Saltið og piprið eftir smekk.

Í lokin er pastanu, kjúklingnum og paprikunni blandað saman við sósuna og þá er þetta tilbúið.