Möndluterta Ólafar

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Marengs
Skref 1
Notið afhýddar og saxaðar möndlur.
Þeytið hvíturnar, bætið flórsykrinum útí og stífþeytið.
Blandið möndlunum varlega samanvið.
Skiptið deiginu í þrjá hluta og setjið í lausbotna form, fóðruð með bökunarpappír
Bakið í miðjum ofni í u.þ.b. 15 mínútur við 150˚C
Krem
Skref 1
Setjið rauður, sykur og rjóma saman í pott
Hrærið stöðugt í og látið krauma við vægan hita þar til blandan fer að þykkna.
Skref 2
Takið pottinn af hitanum.
Saxið súkkulaðið og hrærið útí.
Skref 3
Bætið smjörinu útí í litlum bitum smátt og smátt.
Hrærið vel í á milli.
Kælið kremið síðan
Samsetning
Skref 1
Smyrjið kreminu milli botnanna og yfir kökuna.
Stráið möndluspænum yfir, til skrauts.