Makkarónur með osti

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Hæfilegt magn af smjöri brætt á pönnu eða í potti
Púrrulaukur skorinn í tvennt og skolað af honum undir köldu vatni. Síðan þverskorinn í ekki of fína bita.
Dálitið af timjani sett í pottinn
Hvítlauksgeira skornir í sneiðr og settir á pönnuna
Stilkarnir af brokkolíinu skornir niður í bita og settir útí, blómin skorin af og geymd þar til síðast.
Mýkið á pönnunni í u.þ.b. 15 mínútur
Skref 2
Setjið hveitið útí fyrst og hrærið saman við grænmetið.
Setjið svo mjólkina útí og látið sjóða um stund og þykkna dálítið á meðan osturinn er rifinn og síðan settur útí.
Látið malla í smá stund og síðan malað saman með töfrasprota þar til blandan er silkimjúk
Skref 3
Makkarónurnar soðnar í 5 mínútur, þær sjóða áfram í ofninum.
Spínatinu bætt útí, það skreppur mjög saman.
Hellið öllu í eldfast mót og dreyfið höfðunum af brokkólíinu yfir.
Rífið smá parmesan yfir og dreyfið möndluflögum yfir það.
Bakið í ofni við 180˚C í u.þ.b. 30 mínútur