Beint að efninu

Laufabrauð

1

30gSmjörlíki
300mlMjólk

Bræðið smjörið í mjólkinni

2

150gHrísmjöl
1mskSykur
1tskLyftiduft
350gHveiti
1tskSalt

Á meðan mjólkin er að hitna eru þurrefnin mæld og sett í hrærivélarskál.

Þegar smjörið er bráðið er blöndunni bætt í þurrefnin og hrært.
Deigið þarf að hnoða vel þangað til það er orðið létt og sprungulaust. Þá er deigið formað í lengju og skorið í hæfilega bita sem eru flattir út í örþunnar kökur.
Steikist í snarpheitri feiti. Munið að pikka kökurnar áður en þær eru steiktar.