Kryddkökur

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Hrært saman þar til blandan er létt og ljós.
Skref 2
Bætt útí og hrært vel samanvið.
Skref 3
Öllum þurrefnum er sáldrað samanvið.
Deigið skal hnoðað og rúllað upp í jafnar, hæfilega sverar lengjur sem ágætt er að geyma í kæli yfir nótt því þá er þægilegra að skera deigið í hæfilega þykkar sneiðar.
Sneiðarnar eru penslaðar með bræddu smjöri, dýft í perlusykur og raðað á plötur. Geta setið þétt.
Bakað við 220 ◦ C í u.þ.b. 6 mínútur. Kökurnar eiga að vera ljósar.