Krem úr smjöri og rjómaosti

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Grunnur
Hrærið saman rjómaosti og smjöri í hrærivél
Bætið öllu síðan útí og þeytið þar til létt og ljóst.
Eftir það er hægt að gera nokkur tilbrigði eins og hér er lýst.
Krem með súkkulaðibragði
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og bætið útí kremið.
Krem með appelsínubragði
Notið appelsínuþykkni í stað mjólkur
Krem með bananabragði
Setjið bananadropa í stað vanilludropa
Krem með kokteilberjabragði
Notið kokkteilberjasafann í staðinn fyrir mjólk.
Saxið kokkteilberinn og hrærið útí
Notið rauðan matarlit til að fá skýrari rauðan lit.
Krem með kókosbragði
Brúnið kókosmjölið.
Setjið helminginn í kremið og notið helminginn til skrauts
Sítruskrem
Notið appelsínubörk, sítrónubörk eða limebörk í kremið.
Krem með karamellubragði
Minnkið flórsykurinn um 1/2 bolla.
Hitið 1/2 bolla af púðursykri ásamt mjólk og smjöri þar til sykurinn bráðnar. Kælið.
Hrærið rjómaosti, vanilludropim, salti og flórsykri samanvið.