Kjúklinga karrý Chetnu

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Marinering. Setjið jógúrt og krydd saman í skál og blandið vel saman
Blandið svo kjúklingnum sama við. Má gjarnan marinerast í kæli yfir nótt.
Skref 2
Hér er átt við smálauka sem eru skornir í hæfilega bita eftir smekk. Það þarf talsvert magn af lauk.
Olía sett í stóran pott og hituð. Dálítið af kúmínfræjum steikt í olíunni þar til ilmar.
Steikið laukinn í olíunni þar til hann er orðinn nokkuð dökkur, hann gefur grunn að góðu bragði.
Setjið tómatana sama við og blandið vel, látið krauma í 10 - 15 mínútur.
Setjið nú kjúklinginn útí og lokið á pottinn og látið krauma í 45 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.