Beint að efninu

Indverskt Dal

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.

Skref 1

Hitið olíuna í potti.
Steikið laukinn og hvítlaukinn ásamt klípu af salti þar til laukurinn
er orðinn mjúkur og glær.

Skref 2

Engiferið er saxað smátt og gulræturnar skornar í litla bita, helst krúttlega. Bætið útí og látið krauma í nokkrar mínútur.
Setjið kryddið útí og látið krauma í nokkrar mínútur í viðbót þar til eldhúsið ilmar af kryddinu.

Skref 3

Bætið öllu útí og látið suðuna koma upp.
Látið krauma í u.þ.b. 40 mínútur, eða þar til linsurnar eru orðnar mjúkar.

Gott að hræra öðru hvoru í pottinum.

Skref 4

Bætið útí pottinn þegar nokkrar mínútur eru eftir og látið malla í nokkrar mínútur í viðbót.
Piprið að smekk.