Kjúklingur og kartöflur á pönnu

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Skerið kjúklingabringurnar í strimla
Blandið öllu þessu saman í skál og látið standa á meðan kartöflurnar eru soðnar.
Notið "Sterka sósu" sem ykkur líkar við, þ.e.a.s. einhverja chili sósu eða svoleiðis.
Kryddið með pipar að smekk.
Skref 2
Skerið kartöflurnar í fernt og sjóðið í u.þ.b. 8 mínútur. Þetta er ekki full suða en flýtir fyrir þegar kartöflurnar verða steiktar á pönnu.
Skref 3
Notið stóra pönnu.
Bræðið smjörið og ólífuolíuna saman á pönnunni og steikið soðnu kartöflurnar þar til þær eru orðnar brúnaðar og stökkar.
Takið af pönnunni og setjið til hliðar.
Skref 4
Setjið allt á pönnuna og hitið í eitt augnablik eða þar til eldhúsið fyllist af kryddilmi. Það má gjarnan nota ferskar kryddjurtir ef þær eru við hendina.
Veiðið kjúklinginn upp úr marineringarvökvanum og leggið á pönnuna og steikið. Þegar kjúklingurinn er steiktur má hella afgangnum af marineringarvökvanum yfir, ef vill, og sjóða um stund.
Bætið kartöflunum á pönnuna og hitið um stund þar til allt er orðið heitt í gegn.