Hnetusteik

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Laukurinn saxaður smátt og steiktur á rúmgóðri pönnu.
Bætið kryddinu útí og steikið áfram þar til eldhúsið ilmar, það tekur aðeins 1 - 2 mínútur.
Bætið svo tómatpúrrunni útí og blandið vel saman.
Skref 2
Ræturnar skulu allar rifnar niður og síðan settar útá pönnuna og allt látið krauma í u.þ.b. 20 mínútur.
Leyft að kólna á meðan haldið er áfram eftir uppskriftinni.
Skref 3
Hvaða hrísgrjón sem er koma til greina, brún eða hvít eða rauð eða annað. Hrísgrjón eru valin skv. smekk og soðin samkvæmt leiðbeiningum.
Kartöflur skulu soðnar og skrældar.
Skref 4
Hneturnar eru ristaðar á pönnu um stund og síðan malaðar.
Rasp
Skref 5
Hnetur ristaðar á pönnu og síðan malaðar sama í rasp.
Samsetning
Öllu hrært saman í hrærivél, gott að nota hnoðarann.
Síðan hnoðað saman í hleyf eða hleyfa eftir stærðarsmekk og velt upp úr raspinu.
Bakað í ofni við 200˚C í u.þ.b. 40 mínútur.