Hjónabandssæla

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Best er að leyfa smjörlíkinu að ná stofuhita áður en byrjað er.
Mælt saman í hrærivélarskál og hrært vandlega saman.
Skref 2
Þurrefnum bætt útí og hrært rólega saman. Deigið má gjarnan vera laust í sér, það þjappast í forminu.
Takið tvo þriðju af deiginu og setjið í botninn á hæfilega stóru bökunarformi og þjappið mátulega mikið. Smyrjið rausnarlegu lagi af rabbabarasultu á deigið og myljið síðan síðasta þriðjunginn af deiginu yfir þannig að yfirborðið verði eins og hraunað.
Bakið við 180˚C í 25-30 mínútur.