Beint að efninu

Hjónabandssæla með kókos

1

3BollarHveiti
3BollarHaframjöl
2BollarSykur
2BollarKókosmjöl
2tskMatarsódi
450grSmjör

Bræðið smjörið.

Mælið þurrefnin út og setjið í hrærivélarskál og hrærið rólega saman á meðan smjörinu er hellt útí.
Um 2/3 af deiginu eru settir í botninn á formi og þjappað aðeins niður, rabbabarasulta ofan á og svo restin af deiginu yfir og þjappað aftur.

Sumir láta sultuna ekki ná alveg út á brún til að hún þorni ekki og harðni við baksturinn, öðrum finnst það vera bestu bitarnir.  

Bakað við 175˚C í 15-12 mínútur, þar til yfirborðið er orðið fallega gullið.