Beint að efninu

Döðlu og pekanhnetubrauð

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.

Skref 1

Döðlur settar í vatn og soðnar í nokkrar mínútur eða þar til vökvinn er nær allur gufaður upp, látið kólna.

Skref 2

Á meðan döðlurnar kólna er eplamauki, eggjum, púðursykri og vanilludropum hrært saman í skál.

Það má sleppa púðursykrinum ef þannig stendur á.

Skref 3

Hveiti, lyftidufti, salti og kryddi blandað saman og hrært útí eggjablönduna.

Skref 4

Að lokum er döðlum, vatni og hnetum blandað saman við.
Þetta skal bakað neðarlega í ofni í jólakökuformi við 170 í 50-60 mín. eða þar til prjónn kemur hreinn upp.