Danskt rúgbrauð I

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Hinn fyrsti súr
Skref 1
Það tekur nokkra daga að búa til fyrsta súrinn. Blandið þessu tvennu saman í glerkrukku og látið hana standa úti á borði með laust lok í 3-4 daga. Þá er þetta farið að bólgna og búbla. Næsti súr er auðveldari því maður tekur 100gr. af tilbúnu deigi í lokin og setur í krukku, lokar henni þétt, og setur inn í ísskáp þartil maður bakar næst (endist í 4-6 vikur í kæli)
Dagur 1
Skref 1
Kornið er lagt í bleyti yfir nótt svo það sé mjúkt og tilbúið þegar það er sett saman við deigið.
Vökvi: Það er fínt að leggja það í vatn en það má t.d. nota dökkan bjór, hann gefur líka viðbótar bragð.
Skref 2
Allt sett saman í skál og hrært vel saman.
Látið standa við stofuhita til næsta dags.
Dagur 2
Skref 1
Nú er öllu blandað saman í skál.
Öllu frá deginum áður og þessum fræjum til viðbótar ásamt salti.
Deigið er mjög blautt enda hrært en ekki hnoðað.
Næst er að:
- Setja deigið í brauðform sem eru smurð með smjöri
- Láta það hefast í 3-4 klukkutíma við stofuhita, að lyftir sér u.þ.b. 30-50%
- Baka í ofni við 180˚C í u.þ.b. 40 mínútur eða þar til kjarnhiti er orðinn 95-100˚C
Takið deigið strax úr forminu þegar það er tekið út og látið kólna alveg áður en það er skorið.