Beint að efninu

Danskt rúgbrauð II

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.

Hinn fyrsti súr

Skref 1

Það tekur nokkra daga að búa til fyrsta súrinn.  Blandið þessu tvennu saman í glerkrukku og látið hana standa á borði með laust lok í 3-4 daga.  Þá er þetta farið að bólgna og búbla.  Næsti súr er auðveldari því maður tekur 100gr. af tilbúnu deigi í lokin og setur í krukku og inn í ísskáp þartil maður bakar næst (endist í 4-6 vikur í kæli)

Dagur 1 - Lagt í bleyti

Skref 1

Öllu blandað saman í skál og hrært vel saman.
Það er allt í lagi að skipta vatni út að hluta fyrir t.d. bjór.

Hægt að nota hvaða fræ sem mann langar til, t.d. Hörfræ eða sesamfræ, magnið á að vera 200gr.

Dagur 2 - Samsetning og bakstur

Skref 1

Blandað saman við blönduna frá fyrra degi og hrært vel saman.  Þetta á að vera svipað og hakkað kjöt að þéttleika.
Það er ágætt að setja smá hveiti því það límir deigið betur saman.

Sett í smurt form og látið rísa í 2-3 klukkustundir, á að rísa 20-30%

 

Bakað við 180˚C í u.þ.b. klukkustund eða þar til kjarnhiti er 95-98˚C