Brokkolíbrauðréttur

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Brauðið skorið niður í teninga og sett í botninn á eldföstu móti.
Brokkolíið er skorið niður í "lauf" og snöggsoðið, síðan dreift yfir brauðið.
Skinkan og paprikan sömuleiðis skorin niður í litla bita og stráð yfir
Skref 2
Osturinn skal bræddur í rjómanum og blöndunni síðan helt yfir.
Bakað við 200˚C í u.þ.b. 20 mínútur.
Gott að hafa rifsberjahlaup með þessu.