Beint að efninu

Bauna og sveppa bollur

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.

Skref 1

Saxið laukinn smátt og steikið á pönnu.

Skerið sveppina í sneiðar og bætið á pönnuna ásamt fínsöxuðum eða pressuðum hvítlauk.

Skref 2

Setjið baunirnar og kryddið saman við og látið sjóða saman í a.m.k. 10 mínútur.

Stappið svo öllu saman með kartöflustappara.  Það er í lagi að skilja eftir smá bita en ekki skilja eftir heilar baunir.

Saltið og piprið að smekk.

Búið til bollur úr deiginu, má pressar þær niður í borgara ef vill.

Síðan er bollunum raðað á plötu og þær bakaðar í ofni við 180˚C í a.m.k. klukkustund eða þar til bollurnar eru orðnar gullnar og stinnar.