Afrískur pottréttur

Hakaðu við hráefnin eftir því sem þú notar þau.
Skref 1
Olía hituð í potti, laukurinn skorinn í þunnar sneiðar og settur í pottinn við miðlungshita.
Þegar laukurinn er orðinn mjúkur er tómatpúrru og kryddi bætt útí og hrært vel saman.
Skref 2
Allt grænmeti skorið niður í hæfilega bita og bætt útí kryddblönduna og blandað vel samanvið þannig að kryddblandan þeki allt grænmetið.
Skref 3
Grænmetisteningur leystur upp í vatni og bætt útí pottinn ásamt tómötum, kókosmjólk, baunum.
Döðlur saxaðar og bætt útí.
Leyfið að malla saman í u.þ.b. 30 mínútur.
Saltið að smekk.